Auglýsing

Tilkynning frá lögreglu vegna barnsráns tilraunanna í Hafnarfirði

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi rétt í þessu frá sér tilkynningu þar sem varað er við manni sem hefur veist að í það minnsta fjórum börnum.

Þar segir að fyrsta málið hafi átt sér stað á eða við Víðistaðatún í byrjun þessa mánaðar en strax um viku síða hafi komið upp svipað mál við Engidalsskóla.

Lögregla segir að síðasliðinn föstudag hafi svo verið tilkynnt um karlmann nærri Lækjarskóla sem sagður var hafa elt barn og boðið því nammi.

Í gærmögun, miðvikudaginn 22. maí hafi svo fjórða málið verið kært þar sem maðurinn veittist að ungri stúlku og reyndi að nema hana á brott.

Lögreglan segist hafa aukið eftirlit sitt á svæðinu vegna þessa og taki slíkar tilkynningar mjög alvarlega.

Lögregla ítrekar einnig að því fyrr sem slík atvik séu tilkynnt, því meiri líkur séu á að leit að geranda beri árangur og betra sé að tilkynna of oft en of sjaldan.

Ef einhver hefur upplýsingar um málið er bent á að hafa strax samband við lögreglu í síma 112.

Tilkynningu lögreglunnar í heild sinni má sjá hér fyrir neðan:

„Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú fjögur tilvik þar sem karlmaður veittist að börnum í Hafnarfirði. Fyrsta málið átti sér á eða við Víðistaðatún í byrjun mánaðarins og tæpri viku síðar kom upp ámóta mál við Engidalsskóla. Síðastliðin föstudag var tilkynnt um karlmann nærri Lækjarskóla og hann sagður elta barn og bjóða því nammi. Og í gærmorgun, miðvikudag, veittist maður að stúlku á göngustíg á milli Miðvangs og Víðistaðaskóla. Málin hafa valdið áhyggjum, eðlilega, en lögreglan hefur aukið eftirlit sitt í Hafnarfirði vegna þeirra. Rannsókn lögreglu snýr m.a. að því hvort um sama mann var að ræða í öll skiptin, en hún leggur jafnframt áherslu á að tilkynnt sé um málin eins fljótt og verða má og þá í 112. Slíkar tilkynningar eru ávallt teknar mjög alvarlega og hjálpa lögreglu að bregðast hratt við. Berist þær (tilkynningar) nokkrum klukkutímum eftir atvik, eða daginn eftir, torveldar það leitina að gerandanum. Að endingu er minnt á að betra er að hringja í lögregluna einu sinni of oft heldur en einu sinni of sjaldan.“

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing