Ný gögn sem borist hafa Nútímanum benda til þess að timbur sem lögregla sagðist hafa fargað í tengslum við rannsókn á máli timbursalans Páls Jónssonar hafi í raun verið afhent þriðja aðila.
Þetta kemur fram í endurupptökubeiðni gjaldþrotamáls sem lögð hefur verið fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur og í samtali Nútímans við Pál, en þar segir hann að hann hafi nú fengið staðfestingu á að timbrið sé sannarlega til, því hafi ekki verið fargað heldur afhent stofnuninni Landi og skógum í Gunnarsholti.
Málið snýst um timburhús og pallaefni sem flutt var til landsins í gámi og síðar haldlagt af lögreglu árið 2022 í tengslum við umfangsmikið fíkniefnamál. Samkvæmt fyrri upplýsingum frá embætti ríkissaksóknara átti efninu að hafa verið fargað, en nú liggur fyrir að svo virðist ekki vera.
Lögregla sagðist hafa fargað timbrinu
Í bótakröfu sem lögmaður Páls lagði fram árið 2025 er vísað til þess að lögregla hafi sagst ekki getað skilað timbrinu þar sem því hefði verið fargað. Í kröfunni er farið fram á rúmlega 7,7 milljóna króna skaðabætur vegna tjóns sem talið er hafa orðið við haldlagningu og meðferð timbureignarinnar. Greiðsluáskorun vegna kröfunnar var síðar send lögreglustjóra þar sem krafan var ítrekuð og gerð krafa um greiðslu innan tiltekins frests. Í tölvupósti frá embætti saksóknara, sem fylgir gögnum málsins, er jafnframt vísað til þess að málinu hafi verið lokið á þeim forsendum að Páll ætti ekki kröfu á timbrið.
Nýjar upplýsingar: Timbrið afhent Landi og skógum
Í endurupptökubeiðninni kemur hins vegar fram að síðar hafi komið í ljós að timbrið hafi verið afhent Landi og skógum á sama tíma og gámurinn, sem efnið hafði verið geymt í, var afhentur eiganda hans tómur. Þessar upplýsingar lágu ekki fyrir þegar metið var hvort Hús og harðviður ehf., félag í eigu Páls, væri gjaldfært, en félagið var síðar tekið til gjaldþrotaskipta að kröfu Skattsins. Í endurupptökubeiðninni er því haldið fram að mat á eignastöðu félagsins hafi verið byggt á röngum forsendum þar sem gengið hafi verið út frá því að timbrið væri glatað.
Páll: „mér var sagt að þetta væri farið í brennslu“
Í samtali við Nútímann segir Páll að honum hafi ítrekað verið tjáð að timbrinu hefði verið fargað.
„Mér var sagt að þetta væri farið í brennslu og ég ætti ekki kröfu í neitt. Nú kemur í ljós að þetta var bara afhent öðrum óviðkomandi aðila endurgjaldslaust,“ segir hann.
Hann segist hafa rætt við sviðsstjóra Lands og skóga sem hafi staðfest við hann í síma að lögregla hafi boðið honum með tölvupósti að þiggja efnið endurgjaldslaust. Páll hafi beðið manninn um að áframsenda sér póstinn frá lögreglu, sem maðurinn sagði í fyrstu sjálfsagt að verða við. Þegar dráttur hafi orðið á því hafi Páll aftur hringt í manninn en þá dró hann verulega í land með þetta og sagðist engan tölvupóst hafa.
Páll hafi hinsvegar keyrt að Gunnarsholti og fengið staðfest að timbrið væri sannarlega þar og tók hann af því ljósmyndir til sönnunnar. Hann segir málið varpa alvarlegu ljósi á meðferð lögreglu á haldlögðum munum og segir ljóst að með þessu framferði hafi honum verið bakað umtalsvert tjón sem lögregla hlýtur að þurfa axla ábyrgð á.
Getur haft áhrif á gjaldþrotamálið
Í endurupptökubeiðninni er einnig vísað til þess að félagið hafi átt raunverulega eign í timbrinu á þeim tíma sem gjaldþrot var úrskurðað og að þær upplýsingar hefðu getað haft áhrif á niðurstöðu málsins. Þá er bent á að fyrirsvarsmaður félagsins hafi verið í afplánun þegar gjaldþrotabeiðnin var tekin fyrir og að félaginu hafi því í reynd verið meinað að neyta andmælaréttar síns.
Krefst endurupptöku og bóta
Farið er fram á að gjaldþrot félagsins verði tekið upp að nýju, að úrskurður um gjaldþrot verði felldur úr gildi og að kröfu Skattsins verði hafnað. Jafnframt stendur bótakrafa vegna timbursins enn yfir, en hún nemur rúmlega 7,7 milljónum króna auk vaxta og kostnaðar.
Stærsta kókaínmál Íslandssögunnar
Málið sem Páll Jónsson var sakfelldur fyrir var stórt og umfangsmikið. Fjórir menn voru sakfelldir fyrir innflutning á 100 kílóum af kókaíni og hlutu þunga dóma. Sá sem hlaut þyngsta dóminn var Páll Jónsson sem var 67 ára gamall er dómur féll yfir honum. Efnin voru falin í trjádrumbum sem Páll lét flytja til landsins í gegnum fyrirtæki sitt, Hús og Harðviður, sem staðsett var í Hafnarfirði. Páll var óvenjulegur sakborningur í svo alvarlegu og umfangsmiklu máli, en hann hafði ekki áður komið við sögu lögreglu. Hann hélt því fram fyrir dómi að hann hefði einungis vitað af 6 kílóum og að hann hefði verið blekktur af skipuleggjendum smyglsins. Engu að síður fékk hann þyngsta dóminn.
Óskað eftir skýringum
Nútíminn hefur sent fyrirspurn til lögreglu og Lands og skóga um málið og hvort timbur sem haldlagt var hafi verið afhent stofnuninni. Ekki hafði borist svar þegar frétt þessi var birt.