Verktakar deyja ekki ráðalausir: Vilja flytja glænýtt raðhús í heilu lagi úr Grindavík

Kimar ehf. hafa óskað eftir lóð í Garðinum í Suðurnesjabæ fyrir nýtt fimm íbúða einingaraðhús sem yrði flutt af grunni úr Grindavík á nýja lóð. Það eru Víkurfréttir sem greina frá þessu en vitnað er í framkvæmda- og skipulagsráð Suðurnesjabæjar.

Þar segir í afgreiðslu ráðsins á umsókninni að lóðir í öðrum áfanga Teiga- og Klapparhverfis verða ekki byggingahæfar fyrr en á vormánuðum.

„Núgildandi úthlutunarreglur um lóðir í Suðurnesjabæ gera ráð fyrir því að almennt séu allar lóðir auglýstar til umsókna sem eru til úthlutunar. Ráðið getur því ekki orðið við þeirri ósk að ráðstafa sérstaklega lóðum til almennra byggingaraðila nema Suðurnesjabær felli úr gildi eða breyti núverandi reglum um úthlutun lóða.“

Fasteignafélagið Þórkatla mun hefja kaup á íbúðarhúsnæði í Grindavík í þessari viku en samkvæmt upplýsingum frá félaginu hafa 644 umsóknir borist. Markmið Þórkötlu er að klára afgreiðslu flestra þeirra umsókna sem þegar hafa borist með kaupsamningum í þessum mánuði.

Auglýsing

læk

Instagram