Virkir í athugasemdum leika á als oddi um „andtrúarboðun“ Langholtsskóla

Trúarbragðafræðingurinn Bjarni Randver Sigurvinsson birtir pistil í Morgunblaðinu í dag og sakar þar Langholtsskóla um andtrúarboðun í friðargöngu skólans í síðustu viku. Ástæðan er sú að nemendur skólans sungu lagið Imagine eftir John Lennon sem Bjarni Randver vill meina að sé samið „til höfuðs trúarbrögðum“.

Sjá einnig: Nemendur í Langholtsskóla áttu friðsama stund í staðinn fyrir að fara í kirkju

Pistillinn hefur vakið mikla athygli í dag. Það vakti líka mikla athygli vakti þegar Langholtsskóli lagði af heimsóknir nemenda í Langholtskirkju fyrir jólin en slíkar ferðir hafa verið hefð í skólanum um langa hríð.

Í bréfi frá skólastjóra kom fram að ástæða þessarar breytingar sé sú að ekki geti allir tekið þátt í kirkjuferðinni þar sem margir nemendur séu ekki í Þjóðkirkjunni.

Á vef skólans kemur fram að nemendur hafi farið nýja leið í ár. Þeir mynduðu friðarmerkið og sungu texta Þórarins Eldjárns við lagið Imagine eftir John Lennon

Virkir í athugasemdum höfðu sitt að segja um pistil Bjarna. Hér er brot af því besta.

 

5. Ragnhildur skrifar:

„Hvað segir Borgin við þessari innrætingu? Það hlýtur að gilda það sama um „friðargöngur“ og kirkjuheimsóknir.“

4. Gísli skrifar:

„Vadikanið setti inn í biblíuna að helvíti væri staður sem við færum á ef….“

3. Sylvía skrifar:

„Takk Bjarni Randver.“

2. Þórarinn skrifar:

„Algjörlega sammála Bjarna Randveri. Það er ekki hlutverk skólans að innprenta trúleysi í börnin.“

1. Ingunn skrifar:

„Ég tek undir hvert orð Bjarna Randvers. Afkristnun íslensku þjóðarinnar mun að lokum steypa henni í glötun.

Ég tel að Agnes biskup þurfi að láta til sín taka í þessu máli. Hún hefur verið of mild og ekki tekið af skarið í þessu máli.

Biskupinn gæti t.d. bannfært skólastjórnendur og kennara í Langhólaskóla. Þá yrði þeim meinað að stíga færti inn fyrir guðshús um land allt, gætu ekki mætt í fermingar og giftingar, og fengjust ekki jarðsettir í vígðri mold. Þjóðkirkjan á ekki sitja undir svona löguðu þegjandi.“

Auglýsing

læk

Instagram