Sjónvarpsstöðvar á svipuðum tímamótum og vídeóleigur fyrir nokkrum árum

Jón Gnarr, dagskrárstjóri 365, segist ekki vera talsmaður línulegrar sjónvarpsdagskrár. Hann segir sjónvarpsstöðvar í dag standa á svipuðum tímamótum og myndbandaleigur fyrir nokkrum árum. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Jóns.

Sjá einnig: Fimm algengar spurningar um þjónustu Netflix á Íslandi, hvernig er úrvalið?

Færsla Jóns um komu Netflix til landsins vakti mikla athygli í dag. Í færslunni sagðist hann efast um að koma Netflix til landsins sé fagnaðarefni fyrir neytendur og vísaði í umfjöllun Kjarnans þar sem því er haldið fram.

„Ég elska sjónvarp og hef alla tíð gert. Ég er þakklátur fyrir öll þau tækifæri sem ég hef fengið til að vinna við sjónvarpsþáttagerð, bæði sem höfundur og leikari,“ segir Jón.

Þetta hefur verið með því skemmtilegra sem ég hef gert um ævina. Ég er enginn talsmaður eða varðmaður línulegrar sjónvarpsdagskrár. Það hefur verið nauðsynlegt fyrir okkur, sem vinnum að sjónvarpsþáttagerð á Íslandi, að fá einhverja sjónvarpsstöð til samstarfs og svo sýna þættina okkar.

Jón segir að í sínu tilfelli hafi Stöð 2 yfirleitt verið samstarfsaðilinn. „Þar gerði ég Fóstbræður á sínum tíma og svo Vaktirnar,“ segir hann.

„Og til þess þurfa þessi fyrirtæki yfirleitt að sjá sér einhvern hag í því að taka þátt í svona samstarfi. Ég óttast það að þessi þróun verði til þess að það verði erfiðara að þróa og framleiða íslenskt efni, sérstaklega leikið.“

Jón segir að það sé aðallega vegna þess að þessir stóru erlendu aðilar séu svo fjársterkir og valdamiklir að erfitt sé að keppa við þá.

„Og þetta er ekki af eigingjörnum ástæðum eða vegna þess að ég er að vinna hjá tilteknu fyrirtæki. Sjónvarpsstöðvar í dag standa á svipuðum tímamótum og vídeóleigur fyrir nokkrum árum. Ég er ekkert desperat. Og ég er ekki að væla neitt, bara að vekja athygli á þessu,“ segir hann.

„Ég útiloka ekki að þetta verði allt í lagi og eitthvað frábært gerist í tækni- og bissnessheimum sem færi okkur meira af vönduðu, innlendu efni. En ég tel líklegra og lógískara að slíkt fari minnkandi og þeir Íslensku þættir sem gerðir verði verði gerðir þannig að þeir höfði meira til útlenskra áhorfenda en íslenskra og missi þannig soldið inntak sitt og verða ekki eins lókal. Mér finnst þetta skipta máli öðrum finnst það ekki.“

Jón lýkur færslunni á því að segja frá þætti sem hann hefur verið að skrifa í mörg ár og kallast „Gamli maðurinn.

„Og eru um gamlan mann sem býr í þjónustuíbúð í Reykjavík og ævintýri hans. Ég efast um að Netflix eða Amazon hafi áhuga á að framleiða þá. En það er ekkert mál. Ég get alveg gert eitthvað annað. En fólk fer þá á mis við gamla manninn. Mér finnst það synd, því hann er frábær.“

Auglýsing

læk

Instagram