today-is-a-good-day

Að meðaltali 21 nauðgun á mánuði: Gífurleg aukning tilkynninga

Um 125 nauðganir voru skráðar og tilkynntar til lögreglu fyrstu sex mánuði ársins 2022, sem samsvarar 28% fjölgun frá því í fyrra. Segir þetta í nýrri skýrslu ríkislögreglustjóra um kynferðisbrot en þar má finna upplýsingar um tilkynningar til lögreglu vegna kynferðisbrota fyrstu sex mánuði ársins. Ef borið er saman við sama tímabil síðustu þrjú ár þar á undan þá fjölgar skráðum nauðgunum um 30%.  Að meðaltali eru núna skráðar tilkynningar um 21 nauðgun á mánuði hjá lögreglunni.

Í málaskrá lögreglunnar vegna kynferðisbrota er bæði skráð hvenær brot eru tilkynnt og hvenær þau áttu sér stað.  Ástæða þess er að oft líður tími á milli þess að brotið á sér stað og tilkynnt er um það til lögreglu. Þegar horft er til tíma brots, var tilkynnt um 83 nauðganir sem áttu sér stað fyrstu sex mánuði ársins eða 14 nauðganir á mánuði, sem samsvarar 1% fækkun frá því í fyrra. Þegar skoðuð er tímasetning nauðgana eftir árum og embættum um helgar þá á 66% þeirra sér stað á höfuðborgarsvæðinu og 65% þeirra frá 18:00-06:00 að morgni.

Nær línulegur vöxtur var í tilkynntum nauðgunum frá 2010. Þeim fækkaði þó verulega á meðan sóttvarnartakmarkanir stóðu sem hæst í Covid-19 heimsfaraldrinum. Þegar losað var aftur um takmarkanir fjölgaði tilkynntum nauðgunum til lögreglunnar á nýjan leik.

Vitundarvakning dómsmálaráðuneytisins, Neyðarlínunnar, ríkislögreglustjóra, lögreglunnar og fjölda annarra samstarfsaðila undir slagorðunum „Verum vakandi“ og „Góða skemmtun“ sem hófst í mars og lauk nú um miðjan ágúst var því beint sérstaklega að skemmtanalífinu og viðburðum með það tvíþætta markmið að fækka brotum og fjölga tilkynningum til lögreglunnar.

Gífurleg aukning tilkynninga

Lögreglan skráði í allt 328 tilkynningar um kynferðisbrot á tímabilinu, sem samsvarar 5% fjölgun frá síðustu þremur árum þar á undan.  Ef borið er saman við fyrstu sex mánuði ársins 2021 fækkar í heildina skráðum kynferðisbrotum um 9% á milli ára.  Skráðum blygðunarsemisbrotum og kynferðisbrotum gegn börnum fækkar. Brot vegna kynferðislegrar áreitni og brot gegn kynferðislegri friðhelgi heldur hins vegar áfram að fjölga, og voru 64 á tímabilinu. Til samanburðar var tilkynnt um 36 brot að jafnaði síðustu þrjú ár þar á undan, eða aukning um 78%.

Meðalaldur grunaðra er 35 ár og var 95% þeirra karlar, þar af 33% undir 25 ára.

Ríkislögreglustjóri birtir ársfjórðungslega tölfræðiupplýsingar um kynbundið ofbeldi, kynferðisbrot og heimilisofbeldi í samræmi við áherslur dómsmálaráðherra um aukna vitundarvakningu um kynferðisbrot og kynbundið ofbeldi.

Auglýsing

læk

Instagram