Akureyringar ánægðir með opnun Bæjarins Beztu: „Sumir komu þrisvar“

Bæjarins Beztu pylsuvagn opnaði á Akureyri um helgina. Vagninn er sá fyrsti frá þessu rótgróna íslenska fyrirtæki sem opnar utan höfuðborgarsvæðisins og Akureyringar eru sáttir með viðbótina. Þetta kemur fram á norðlenska vefnum Kaffið.is.

Sjá einnig: Bæjarins Beztu opnar á Ráðhústorgi

Barði Þór Jónsson, Akureyringur, sér um rekstur á vagninum á Akureyri en hann segir að opnunin hafi gengið vel og að Bæjarins Beztu far vel af stað á Akureyri.

„Það er greinilegt að Akureyringar eru mjög ànægðir með þessa fràbæru viðbót í bæinn okkar. Það heyrðist à kúnnunum okkar í gær að þeir eru mjög ànægðir að geta loksins fengið sér bæjarins beztu pylsu à Akureyri. Sumir fögnuðu okkur svo vel að þeir komu þrisvar til okkar í gær og fengu sér pylsu,“ segir Barði í samtali við Kaffið.is.

Auglýsing

læk

Instagram