Albert reyndi að senda móður sína í Húsasmiðjuna að kaupa spliff, donk og gengju: „Ekkert grín, mjög vinsælt“

Knattspyrnumaðurinn Albert Brynjar Ingason er vinsæll á Twitter en þar er hann duglegur að birta skjáskot af samskiptum við móður sína. Á dögunum reyndi hann að senda móður sína í Húsasmiðjuna til þess að kaupa spliff, donk og gengju í jólagjöf.

Sjá einnig: Þetta eru 17 bestu sketsar Fóstbræðra sem fagna nú 20 ára afmæli: „Kannski í næsta lífi, aumingi!“

Spliff, donk og gengja er þekkt fyrirbæri úr frægum Fóstbræðraskets en Albert sannfærði móður sína um að tólið væri gífurlega vinsælt og gott á heimilið og í útilegur. Hægt væri að kaupa spliff, donk og gengju í Húsasmiðjunni á aðeins 7 þúsund krónur fyrir jólin en vanalega væri það á 9999 krónur.

Þrátt fyrir efasemdir móður hans þá fór spliff, donk og gengja á innkaupalistann fyrir jólin. Það var ekki fyrr en faðir Alberts var á leiðinni í Húsasmiðjuna og rak augun í innkaupalistann og google-aði fyrirbærið að þau hjónin sáu atriðið úr Fóstbræðrum.

Auglýsing

læk

Instagram