today-is-a-good-day

„Algjör­lega ólíð­andi að karlar í valda­stöðum sýni slíka kven­fyr­ir­litn­ingu“

Inga Sæland, Oddný Harðardóttir og Silja Dögg Gunnarsdóttir hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna upptökunnar þar sem þingmenn Miðflokksins og Flokks fólksins tala um þær með niðrandi hætti. Þetta kemur fram á vef Kjarnans.

Sjá einnig:Inga Sæland segir viðbrögð Sigmundar sorgleg: „Hann kemur með sínar samsæriskenningar og firrar sig allri ábyrgð eins og venjulega“

Í yfirlýsingunni kemur fram að þau ummæli sem þingmenn Miðflokksins og Flokks fólksins létu falla þann 20. nóvember á Klaustri lýsi skammarlegum viðhorfum til kvenna og þær líti þau verulega alvarlegum augum. Það sé algjörlega óliðandi að karlar í valdastöðum sýni slíka kvenfyrirlitningu og tjái sig á jafn niðrandi hátt um konur og samkynhneigða.

Þær segja að ummælin dæmi sig sjálf og opinberi viðkomandi þingmenn. Þetta sé ekki til þess fallið að auka virðingu almennings á Alþingi eða stjórnmálamönnum. Hegðunin setji samstarf og trúnað í uppnám. Þær fordæma ummælin og munu óska eftir því að málið verði tekið upp í forsætisnefnd.

Í lok yfirlýsingarinnar minna þær á eftirfarandi siðareglur sem þingmenn hafa undirgengist.

Meg­in­reglur um hátt­erni.

1. gr. Al­þing­is­menn skulu sem þjóð­kjörnir full­trú­ar: a. rækja störf sín af ábyrgð, heil­indum og heið­ar­leika, b. taka ákvarð­anir í almanna­þág­u, c. ekki kasta rýrð á Alþingi eða skaða ímynd þess með fram­komu sinn­i, d. nýta þá aðstöðu sem þeim er veitt við störf sín með ábyrgum hætt­i, e. ekki nýta opin­bera stöðu sína til per­sónu­legs ávinn­ings fyrir sig eða aðra, f. greina frá öllum hags­munum sem máli skipta og varða opin­bert starf þeirra og leggja sig fram um að leysa úr árekstrum sem upp kunna að koma með­ al­manna­hag að leið­ar­ljósi, g. efla og styðja grund­vall­ar­reglur þessar með því að sýna frum­kvæði og for­dæmi.

Hátt­ern­is­skyld­ur. 7. gr. Þing­menn skulu í öllu hátt­erni sínu sýna Alþingi, stöðu þess og störfum virð­ingu.

Auglýsing

læk

Instagram