Ari Eldjárn lofar Jakob Birgisson: „Annað eins talent hef ég ekki áður séð“

Grínistinn Ari Eldjárn greindi frá því á Twitter í gærkvöldi að stjórnmálafræðineminn Jakob Birgisson væri næsta stóra nafn í  íslensku uppistandssenunni. Jakob sló í gegn á Hard Rock Café í gær.

Sá Jakob Birgisson flytja sitt fyrsta uppistand í kvöld fyrir troðfullu húsi og get vottað að stórir hlutir voru að gerast. Annað eins talent hef ég ekki áður séð,“ skrifaði Ari meðal annars.

Sýning Jakobs heitir Meistari Jakob og ef marka má orð Ara eigum við eftir að heyra meira frá þessum meistara í framtíðinni.

Auglýsing

læk

Instagram