today-is-a-good-day

Aron Can, Valdimar og margir fleiri bætast í hóp listamanna á Innipúkanum

Innipúkinn verður haldinn í 17. sinn í miðborg Reykjavíkur um verslunarmannahelgina. Í dag var lokadagskrá hátíðarinnar kynnt en meðal þeirra sem bættust við hóp listamanna á hátíðinni eru tónlistarmennirnir Aron Can og Valdimar.

Þegar er búið að kynna til leiks Jóa P x Króla, Svölu, Loga Pedro, GRL PWR, Mugison og fleiri listamenn og hljómsveitir.

Meðal þeirra sem nú bætast í hópinn ásamt Aroni og Valdimar eru Ateria, Auður, Cell7, ClubDub Sísí Ey og Prins Póló. Valdimar mun stíga á stokk ásamt hljómsveitinni Prins Póló á opnunarkvöldi Innipúkans föstudagskvöldið 3. ágúst.

Aðaldagskrá tónlistarhátíðarinnar fer fram innandyra, eins og nafnið gefur til kynna. Að þessu sinni fer hátíðin fram á tónleikastöðunum Húrra og Gauknum. Boðið verður upp á fjölbreytta tónleikadagskrá föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld, dagana 3. til 5. ágúst.

Ókeypis götuhátíðardagskrá verður opin öllum yfir hátíðardagana í nálægð við tónleikastaðina þar sem boðið verður upp á gamalreynda dagskrárliði á borð við pub quiz Innipúkans, árlega listamarkaði, plötusnúða og veitingasölu.

Í tilkynningu frá aðstandendum hátíðarinnar segir að dagskrá hátíðarinnar hafi aldrei verið jafn vegleg og fjölbreytt og í ár. Miðasala á hátíðina fer fram á Tix.is

 
Listamennirnir sem nú eru kynntir til leiks:

  • Aron Can
  • Ateria
  • Auður
  • Bagdag Brothers
  • Cell7
  • ClubDub
  • Contrast
  • DJ Dominatricks
  • Sísí Ey
  • Teitur Magnússon
  • Valdimar
 
Listamennirnir sem þegar hafa verið kynntir:

  • Bjartar sveiflur
  • Bríet
  • GDRN
  • Geisha Cartel
  • GRL PWR
  • Hatari
  • JóiPé x Króli
  • Logi Pedro
  • Mugison
  • Prins Póló
  • Rari Boys
  • Svala
  • Sykur
  • Une Misère
  • Yung Nigo Drippin
Auglýsing

læk

Instagram