Aron Pálmarsson mættur til Barcelona: „Draumar geta ræst“

Aron Pálmarsson, landsliðsmaður Íslands í handbolta, var í dag formlega kynntur sem leikmaður Barcelona á blaðamannafundi í borginni. Vistarskiptin hafa tekið langan tíma en þau fengu loks farsælan endi í dag.

Sjá einnig: Aron Pálmarsson vissi að hann myndi einhvern tíma spila með Barcelona: „Já. Ég held það“

Aron var að vonum ánægður með niðustöðuna en hann sagði á fundinum að óvissan síðustu tvo mánuði hefði tekið á. Hann sagði jafnframt að Barcelona hefði verið hans draumafélag alla tíð.

„Draumar geta ræst og ég er mjög þakklátur og stoltur af því að geta verið hluti af þessu stóra félagi,“ sagði Aron.

Auglýsing

læk

Instagram