Áslaug Arna á ísbjarnarslóðum: „Var að lenda á upphafsstað hestaferðar, fyrsta sms-ið sem ég fæ er að tilkynna um hvort ég sjái ÍSBJÖRN!“

Tilkynning um að hvítabjörn hefði sést á Melrakkasléttu barst lögreglu síðdegist í gær en leitin að brininum hefur ekki borið árangur. Allir þeir sem staddir voru á svæðinu í gær fengu SMS-skilaboð með fregnunum. Þar á meðal var Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir varaformaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins, en hún er stödd í hestaferð í Öxarfirði.

Lögreglan á Norðurlandi eystra birti þessa tilkynningu á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi

Áslaugu Örnu brá heldur betur í brún í gærkvöldi þegar hún fékk SMS-skilaboðin og var þá nýkomin í Öxarfjörð en hún birti skjáskot af skilaboðunum á Twitter-síðu sinni í gærkvöldi.

Áslaug virðist vera undirbúin undir flest en hún birti mynd í Instagram Stories af haglabyssu og skrifaði við hana „Ef allt fer á versta veg.“ Hún birti einnig myndband af þyrlu landhelgisgæslunnar sem er við leit að birninum.

Auglýsing

læk

Instagram