Báðir mennirnir neita sök, Fréttablaðið krafið um 20 milljónir í miskabætur

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður annars mannanna sem kærðir eru fyrir nauðganir eftir skólaskemmtanir í Háskólanum í Reykjavík, segir að báðir mennirnir neiti sök. Þá segir hann að kæra hafi verið lögð fram gegn konunum fyrir rangar sakagiftir. Þetta kom fram í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun.

Í viðtalinu við Vilhjálm kom enn fremur fram að Fréttablaðið hefur verið krafið um samtals 20 milljónir króna í miskabætur vegna fréttar sem birtist á forsíðu blaðsins í gærmorgun, 10 milljónir á mann. Loks segir Vilhjálmur að verið sé að íhuga málaferli gegn þeim sem deildu myndum af tveimur mönnum sem kærðir hafa verið fyrir nauðgun, nafngreindu þá eða kölluðu þá nauðgara á netinu.

Í Fréttablaðinu í  gær kom fram að rann­sókn lög­reglu bein­ist að hús­næði í fjöl­býl­is­húsi í Hlíðahverfi í Reykja­vík, þar sem talið er að árás­irn­ar hafi átt sér stað. Þá kemur fram að árásirnar hafi verið hrotta­leg­ar og íbúðin búin tækj­um til of­beld­is­iðkun­ar.

Fréttablaðið greindi frá því að lögregla hafi fundið í íbúðinni ýmis tól og tæki sem mennirnir eiga að hafa notað við nauðg­anir, svo sem svipur, reipi og keðjur. Loks segir að hankar hafi verið í loftinu sem grunur leikur á að mennirnir hafi notað til að hengja upp aðra konuna á meðan ráðist var á hana.

Vilhjálmur sagðist í Morgunútvarpinu telja ábyrgð Fréttablaðsins í málinu vera mjög mikla og að bein orsakatengsl væru milli fréttar blaðsins og þeirrar „múgæsingar“ sem hafi orðið í gær, þegar þúsundir manna birtu myndir af hinum grunuðu og nafngreindu þá á samfélagsmiðlum.

Fanney Birna Jónsdóttir, aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins, var einnig í viðtali í Morgunútvarpinu í morgun. Hún sagði að Fréttablaðið stæði að öllu leyti við fréttina.

Vilhjálmur birti þetta myndband sem hann segir vera úr umræddri íbúð í morgun.

Í Fréttablaðinu í gær, 9. nóvember 2015, var því slegið upp á forsíðu, að íbúð í Hlíðunum hafi verið útbúin til nauðgana. Hér er myndband af íbúðinni. Dæmi nú hver fyrir sig. Engu að síður kýs aðalritstjóri Fréttablaðsins að berja höfðinu við steininn og segir í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér í gær að Fréttablaðið standi við fréttina. Kærðu neita alfarið sök og styðja gögn málsins og vitnisburðir framburð þeirra. Aftaka kærðu á netinu í gær mun verða íslendingum til vansa um aldir alda. Á því ber Fréttablaðið fulla ábyrgð ásamt hlutaðeigandi mykjudreifurum. Á þá ábyrgð mun reyna.

Posted by Vilhjálmur H. Vilhjálmsson on Monday, November 9, 2015

Auglýsing

læk

Instagram