today-is-a-good-day

Frumvarp Viðreisnar um breytingu á lögum um kynferðisbrot komið á dagskrá Alþingis

Frumvarp fjögurra þingmanna Viðreisnar um breytingu einu af ákvæðum almennra hegningarlaga sem fjalla um kynferðisbrot er komið á dagskrá á Alþingi. Þingmennirnir vilja setja samþykki í forgrunn þegar nauðgun er skilgreind og þannig verði horfið frá megináherslu á verknaðaraðferð við nauðgun.

Þess í stað verði aukin áhersla lögð á kynfrelsi og sjálfsákvörðunarrétt einstaklings með því að skilgreina nauðgun út frá því hvort samþykki hafi verið fyrir hendi eða ekki. Lagt er til að gerð verði krafa um að samþykki fyrir samræði eða öðrum kynferðismökum hafi legið fyrir þannig að samræði og önnur kynferðismök án samþykkis manns muni varða refsingu. Samþykki þarf að hafa verið tjáð af frjálsum vilja.

Hér má sjá ákvæðið eins og það yrði samkvæmt frumvarpinu:

Hver sem hefur samræði eða önnur kynferðismök við mann án samþykkis hans gerist sekur um nauðgun og skal sæta fangelsi ekki skemur en 1 ár og allt að 16 árum. Samþykki telst liggja fyrir ef það er tjáð af frjálsum vilja. Samþykki telst ekki liggja fyrir ef það er fengið með ofbeldi, hótunum eða annars konar ólögmætri nauðung, eða með því að beita blekkingum eða hagnýta sér villu viðkomandi um aðstæður. Til ofbeldis telst svipting sjálfræðis með innilokun, lyfjum eða öðrum sambærilegum hætti.

Hér má sjá ákvæðið eins og það er í dag:

Hver sem með ofbeldi eða hótun um ofbeldi þröngvar manni til holdlegs samræðis eða annarra kynferðismaka skal sæta fangelsi ekki skemur en 1 ár og allt að 16 árum. Til ofbeldis telst svipting sjálfræðis með innilokun, lyfjum eða öðrum sambærilegum hætti.

Hér má sjá frumvarpið. 

Auglýsing

læk

Instagram