Bæjarins Beztu opna stað á Akureyri

Í byrjun júní munu Bæjarins Beztu pylsur opna pylsuvagn á Ráðhústorgi á Akureyri. Vagninn verður að fyrirmynd vagnsins fræga í Tryggvagötunni í Reykjavík. Þetta kemur fram á norðlenska vefmiðlinum Kaffið.is.

Sjá einnig: Reyndu að borða 10 pylsur á 10 mínútum

Bæjarins Beztu er fyrir löngu orðið rótgróið fyrirtæki í íslenskri matarmenningu en fyrirtækið opnaði fyrsta staðinn árið 1937.

Staðurinn á Akureyri opnar í samstarfi við Barða Þór Jónsson, Akureyring. Hann segir að kapp verði lagt á að hafa pylsuna og upplifunina þá sömu og  í Reykjavík.

„Við hlökkum til að bjóða Akureyringum og nærsveitungum upp á pylsur í höfuðstað Norðurlands. Stefnt er að opnun í næsta mánuði og vonumst eftir því að geta þjónustað Norðlendinga um ókomin ár,“ segir Barði Þór í samtali við Kaffið.

Auglýsing

læk

Instagram