today-is-a-good-day

Banaslys á Vestfjörðum

Í gær varð banaslys á Ingjaldssandsvegi á Sandsheiði í Gerðhamarsdal þegar veghefill hafnaði utan vegar. Stjórnandi veghefilsins sem var að störfum við veginn lést. Lögreglan á Vestfjörðum greinir frá þessu á samfélagsmiðlum.

Lögreglunni bars tilkynning um alvarlegt slys laust fyrir klukkan 18:00 í gær. Tildrög slyssins eru enn ókunn en lögreglan á Vestfjörðum hefur málið til rannsóknar með aðstoð Rannsóknarnefndar samgönguslysa og Vinnueftirlitsins.

Ekki var hægt að birta nafn ökumanns að svo stöddu.

Auglýsing

læk

Instagram