Barátta gegn sykurneyslu Íslendinga: „Hlut­fall of feitra er hátt á Íslandi“

Í nýrri aðgerðaráætlun gegn sykurneyslu Íslendinga er lagt til að hækka verð á gosdrykkjum og sælgæti um að minnsta kosti 20 prósent. Verð á grænmeti og ávöxtum mun lækka í staðinn. Sykurneysla á Íslandi er nú sú mesta á Norðurlöndum og á aðgerðaráætlunin að breyta því.

Sjá einnig: Íslenskir matgæðingar á því að Þristur sé besta íslenska nammið: „Hvað er málið með Íslendinga og lakkrís?“

Verslanir verða einnig hvattar til þess að hætta að bjóða tilboð á sykruðum vörum. Embætti landlæknis vann aðgerðaráætlunina fyrir Svandísi Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra. Aðgerðirnar eru í 14 liðum en samkvæmt embættinu er nauðsynlegt að hrinda í framkvæmd fjölda samstilltra aðgerða.

Svandís Svavarsdóttir skrifaði um málið í Morgunblaðinu í dag en þar leggur hún áherslu á mikilvægi þess að draga úr sykurneyslu. Svandís segir aðgerðaráætlunina í samræmi við lýðheilsustefnu ríkisstjórnarinnar.

„Á Íslandi, sam­an­borið við önn­ur nor­ræn lönd, er mest neysla á sykruðum gos­drykkj­um og syk­ur­rík­um vör­um. Sykraðir gos- og svala­drykk­ir vega þyngst í syk­ur­neyslu hér á landi en rúm­lega þriðjung­ur (34%) af viðbætt­um sykri í fæði lands­manna kem­ur úr þess­um vör­um. Verð á gos­drykkj­um er lágt á Íslandi og lækkaði enn frek­ar þegar vöru­gjöld voru af­num­in í byrj­un árs 2015. Er það and­stætt þeirri þróun sem á sér stað í vest­ræn­um lönd­um þessi miss­er­in,“ skrifar Svandís í Morgunblaðinu.

Hún bætir því við að hlutfall feitra sé of hátt á Íslandi og neysla á sykurríkum vörum auki líkurnar á offitu. Hún vitnar í nýja skýrslu WHO þar sem segir að það sé vaxandi vís­inda­leg­ur grunn­ur fyr­ir því að vel skipu­lagðir skatt­ar á mat­væli, ásamt fleiri aðgerðum, geti verið áhrifa­rík leið til að bæta neyslu­venj­ur.

Auglýsing

læk

Instagram