Bardagi aldarinnar staðfestur, Floyd Mayweather og Conor McGregor mætast í Las Vegas

Boxarinn Floyd Mayweather og bardagakappinn Conor McGregor mætast í boxbardaga í Las Vegas laugardagskvöldið 26. ágúst. Þetta staðfesti Mayweather á Twitter rétt í þessu.

Flyod Mayweather er talinn einn af bestu boxurum allra tíma. Hann hefur barist 49 sinnum sem atvinnumaður og hefur aldrei tapað. Conor McGregor er heitasti bardagakappi heims um þessar mundir og er núverandi UFC-meistari í léttvigt. Hann skoraði Mayweather á hólm þrátt fyrir að sérhæfa sig í blönduðum bardagalistum en ekki boxi.

Þetta verður eitthvað.

Auglýsing

læk

Instagram