Birtir fyrstu myndina af Joaquin Phoenix í hlutverki Jókersins

Todd Phillips, leikstjóri kvikmyndar um Jókerinn, hefur birt mynd af Joaquin Phoenix í hlutverki Jókersins. Myndin er þó ekki alveg eins og fólk bjóst við þar sem hann Joaquin er ekki farðaður í víðfrægt gervi Jókersins.

View this post on Instagram

Arthur.

A post shared by Todd Phillips (@toddphillips1) on

Myndin hefur ekki ennþá fengið nafn en Jókerinn er sem kunnugt er erkióvinur ofurhetjunnar Batman. Todd Phillips skrifaði aðeins „Arthur“ undir myndina af Joaquin Phoenix, sem er vísun í raunverulegt nafn Jókersins: Arthur Fleck.

Í myndinni fylgjum við Jókernum eftir og sjáum hann breytast úr grínista í glæpamann.

Auglýsing

læk

Instagram