Birtu fyrstu opinberu myndina af andliti Archie í tilefni feðradagsins

Hertogahjónin af Sussex, þau Harry Bretaprins og Meghan Markle, fögnuðu í dag fyrsta feðradeginum síðan sonur þeirra Archie kom í heiminn. Þau birtu mynd af piltinum í tilefni dagsins.

Á myndinni sérst í fyrsta sinn opinberlega í andlit drengsins sem heldur í putta föður síns á myndinni. Myndin birtist á Instagram með yfirskriftinni: „Gleðilegan feðradag. Sérstakar óskir til hertogans af Sussex á hans fyrsta feðradegi.“ Archie fæddist 6. maí síðastliðinn

Auglýsing

læk

Instagram