Björt framtíð og Viðreisn vildu að Benedikt yrði forsætisráðherra

Formenn Bjartrar framtíðar og Viðreisnar funduðu með Katrínu Jakobsdóttur, formanni Vinstri grænna, á miðvikudag þar sem meðal annars var viðruð sú hugmynd að ríkisstjórn yrði mynduð með Sjálfstæðisflokki undir forystu Benedikts Jóhannessonar.

Þetta herma heimildir Fréttablaðsins en jafnframt að áður en forseti Íslands afhenti stjórnarmyndunar­umboðið hafi Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, falast eftir stuðningi Pírata til að fá stjórnarmyndunar­umboðið.

Benedikt og Óttarr hafa nú myndað bandalag og gengu saman á fund Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokks, í gær.

Heimildir Fréttablaðsins herma að á miðvikudag hafi formennirnir reynt að byggja brú á milli Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks með því að leggja til að Benedikt, en ekki Bjarni Benediktsson, yrði forsætisráðherra. Málefnið hafi ekki verið rædd á fundinum.

Auglýsing

læk

Instagram