Brad Pitt sagður hafa beitt börn sín og Angelinu Jolie ofbeldi, lögreglan í LA rannsakar málið

Lögreglan í Los Angeles rannsakar nú andlegt og líkamlegt ofbeldi sem leikarinn Brad Pitt á að hafa beitt börn sín og Angelinu Jolie. Þetta kemur fram á vef TMZ.

TMZ greinir frá því að Brad Pitt að hafa misst stjórn á skapi sínu í einkaþotu fjölskyldunnar á dögunum. Daginn eftir á Angelina Jolie að hafa sótt um skilnað. Stjörnuparið hefur verið saman í tólf ár en þau giftu sig árið 2014.

Örskýring: Af hverju er fólk annað hvort með Jennifer Aniston eða Angelinu Jolie í liði?

Lögreglan og barnaverndarnefnd rannsaka ofbeldið sem á að hafa átt sér stað í fluginu. Samkvæmt TMZ kom nafnlaust símtal til lögreglu þar sem greint var frá atvikinu. Þar kom fram að Brad Pitt hafi beitt börn sín bæði andlegu og líkamlegu ofbeldi.

Brad Pitt er sagður taka málið mjög alvarlega. Hann hafnar því að hafa beitt börn sín ofbeldi.

TMZ greinir frá því að sama kvöld og atvikið átti sér stað á Pitt að hafa boðist til þess að fara í meðferð í von um að bjarga hjónabandi sínu og Jolie. 

Auglýsing

læk

Instagram