Auglýsing

Braut rúðu í útidyrahurð og reyndi að komast inn á heimili

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um aðila sem gerði tilraun til þess að komast inn á heimili í hverfi 105. Sá reyndi að ná á íbúa sem að var inni á heimilinu. Íbúinn vildi ekkert með manninn hafa og kallaði til lögreglu. Gerandinn var farinn af vettvangi þegar að lögreglu bar að. Hann hafði brotið rúðu í útidyrahurð.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar og er yfirlit yfir verkefni hennar frá því klukkan 17:00 í gær til 05:00 í morgun.

Þá var tilkynnt um umferðaróhapp í hverfi 104. Þar hafði bifreið verið ekið ógætilega þannig að ökumaður missti stjórn á bifreið sinni sem varð til þess að hún valt eina veltu. Hvorki ökumaður né farþegar slösuðust en bifreiðin var mikið skemmd. Þá urðu skemmdir á ljósastaur. Ökumaður á von á að vera kærður fyrir aka of hratt miðað við aðstæður.

Brotist var inn í fyrirtæki í miðborginni. Gerendur tóku hurð af hjörum og komust þannig inn í rýmið. Innbrotsþjófarnir áttu við sjóðsvél og komust yfir einhver verðmæti.

Lögreglumenn voru kallaðir að raftækjaverslun í borginni í gær. Þar var aðili sem hafði stolið vörum. Hann var æstur og var lögregla kölluð til að ræða við hann.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing