Bríet og Ronja eru komnar á framtíðarheimili, sjáðu þegar þær hittu eigendur sína

Bríet, Guðni, Ronja og Stubbur, stjörnurnar í fyrstu þáttaröðinni af Keeping Up With the Kattarshians, eru allar komnar með framtíðarheimili. Læðurnar tvær voru sóttar í Kattholt í gær og það má með sanni segja að það hafi verið bros á hverju andliti. Sjáðu myndbandið hér fyrir ofan.

Sjá einnig: Fimm nýir kettlingar flytja inn í Kattarshians-húsið: Móðir þeirra fannst á vergangi í Reykjavík

Elísabet Inga, útsendari Nútímans, fékk að fylgjast með og ræddi við nýju eigendurna.

Gunnhildi hefur lengi langað í kött og ákvað að láta verða að því eftir að hún heillaðist upp úr skónum við að horfa á krúttlegasta raunveruleikaþátt í heimi. Hún kom í Kattholt ásamt börnum sínum Eyþóri og Katrínu Ástu og fór Ronja litla heim með þeim. Snæfríður sótti aftur á móti Bríeti litlu og vonum við að allt gangi vel á nýju heimilunum.

Systkinin Hekla, Katla, Vigdís, Bubbi og Þór eru flutt inn í Kattarshians-húsið. Hér er hægt að fylgjast með þeim.

Auglýsing

læk

Instagram