Bubbi ætlar ekki að áfrýja meiðyrðadómnum

Bubbi Morthens ætlar ekki að áfrýja meiðyrðadómi í máli Steinars Bergs gegn sér en hann var dæmdur til að greiða Steinari miskabætur vegna ummæla sem hann lét falla í sjónvarpsþáttaröðinni Popp- og rokksaga Íslands. Þetta kemur fram í skriflegu svari lögfræðings Bubba til fréttastofu RÚV. Bubbi ætlar ekki að tjá sig frekar um málið.

Sjá einnig: Bubbi og RÚV dæmd til að greiða Steinari Berg miskabætur í meiðyrðamáli

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Bubba og Ríkisútvarpið ohf. nýlega til að greiða Steinari Berg Ísleifssyni samtals 500 þúsund krónur í miskabætur vegna ummæla sem Bubbi lét falla í þáttunum Popp- og rokksögu Íslands sem sýndir voru á RÚV.

Þar sagði Bubbi að Steinar hefði „mokgrætt“ á honum og hljómsveit hans, Egó, en útgáfufyrirtækið Steinar hf. gaf út plötur hljómsveitarinnar. Ummælin voru dæmd dauð og ómerk sem og ummæli sem Bubbi lét falla á Facebook 14. og 15. mars árið 2016 og í tveimur viðtölum við Mbl og Vísi þann 17. ágúst sama ár.

Í fréttinni hjá RÚV kemur fram að fyrirtækið hafi ekki ákveðið hvort dómnum verði áfrýjað. Í tilkynningu sem Steinar sendi fjölmiðlum segir hann liggja fyrir að RÚV ætli að áfrýja dómnum og að sá tími sem RÚV hafði til birtingar dómsorðs og forsendna sé liðinn.

Auglýsing

læk

Instagram