Butler leikur Elvis Presley í væntanlegri kvikmynd

Bandaríski leikairnn Austin Butler mun leika tónlistarmanninn Elvis Presley í væntanlegri kvikmynd byggðri á ævi söngvarans. Butler greindi frá fréttunum á Instagram síðu sinni.

Ástralski leikstjórinn Baz Luhrmann mun leikstýra myndinni en hann er með myndir á borð við Moulin Rouge og The Great Gatsby á ferilskránni. Tom Hanks mun fara með hlutverk Colonel Tom Parker í myndinni en hann var umboðsmaður Elvis.

Nokkrir leikarar höfðu verið orðaðir við hlutverk Presley í myndinni en nöfn eins og Ansel Elgort, Harry Styles og Miles Teller höfðu verið nefnd í umræðunni.

Auglýsing

læk

Instagram