ClubDub vinsælir í Vestmannaeyjum: „Það kunnu allir textann við þetta lag“

ClubDub The Movie er komin í Sjónvarp Símans Premium og appinu. Myndin segir sögu félaganna Arons Kristins Jónassonar og Brynjars Barkarsonar sem slógu rækilega í gegn síðastliðið sumar sem raftónlistartvíeykið ClubDub með smellum á borð við Clubbed Up, Drykk 3x og Eina Sem Ég Vil.

Eftir umfangsmikið sumar, sem einkenndist af skyndilegri frægð og tónleikum út um allt land, voru drengirnir bókaðir á nánast hvert einasta busaball landsins. Aron og Brynjar sýna á sér áður óséðar hliðar er þeir rekja báðir ævisögu sína í gegnum myndina.

Í atriðinu hér að neðan rifja þeir það upp þegar þeir voru að spila í Vestmannaeyjum. Þá var lagið Þú ert að eina sem ég vil ekki komið út en samt sem áður kunnu allir tónleikagestir textann við lagið.

Auglýsing

læk

Instagram