Dýralæknastöðin í Grafarholti fjarlægði risa sokk úr þörmum hunds

Dýralæknastöðin í Grafarholti fjarlægði  stærðarinnar sokk úr þörmum labradorhunds sem þangað leitaði í gær. Greint er frá þessu í færslu Dýralæknamiðstöðvarinnar á Facebook.

Í færslunni segir að hundurinn hafi verið orðinn lystarlaus og ekki haldið neinu niðri en eftir að læknar rannsökuðu hann kom sokkurinn í ljós. Ákveðið var að skera sjúklinginn upp og fjarlæga sokkinn.

Dýralæknastöðin í Grafarholti minnir fólk að að passa vel upp á smáhluti í kringum dýr. „Við viljum minna alla gæludýraeigendur á að passa vel upp á smáhluti og föt í kringum dýrin, en einnig að vera vakandi fyrir einkennum um fastan aðskotahlut, en þau eru sérstaklega uppköst, lystarleysi, slappleiki og að halda engu niðri,“ segir í færslunni.

Færslan í heild

Í dag fengum við góða áminningu um hvað hundar og kettir eru miklir óvitar. Fyrst kom til okkar ljúfur og góður labrador…

Posted by Dýralæknamiðstöðin Grafarholti on Föstudagur, 1. febrúar 2019

Auglýsing

læk

Instagram