Edda Björgvins um meðvirkni: „Þetta er sjúkdómur og getur drepið mann“

Edda Björgvins er gestur í nýjum þætti af Með Loga sem kemur í Sjónvarp Símans í kvöld. Logi og Edda ræða meðal annars baráttu Eddu við meðvirkni í þættinum.

Edda segist vera svakalega meðvirk: „Annars væri ég ekki í þessari tólf spora vinnu, sem ég þarf alltaf að vera í. Ég er með öll einkennin.“

Sýnishorn úr þættinum má sjá í spilaranum hér að ofan. Þátturinn sem sýndur verður í kvöld er sá fyrsti í nýrri þáttaröð af Með Loga.

Nýja serían telur átta þætti en gestir Loga í nýju þáttaröðinni auk Eddu verða Björgvin Halldórsson, Kári Stefánsson, Linda Pétursdóttir, Ágústa Eva Erlendsdóttir, Ólafur Darri Ólafsson, Jakob Frímann Magnússon og forsetafrúin Eliza Reid.

Auglýsing

læk

Instagram