Eiður Smári rifjaði upp gamla takta og fór illa með Hjörvar Hafliðason sem svarar fyrir sig: „Endilega sýndu liðum í heitum löndum þessa vörzlu!“

Eiður Smári Guðjohnsen var einn af þeim sem tók um helgina þátt í úrslitaleik Tommamótsins. Leikurinn var styrktarleikur fyrir Tómas Inga Tómasson, yfirþjálfara yngri flokka Fylkis, sem glímir við erfið veikindi.

Eiður sýndi flotta takta í leiknum og skoraði fram hjá Hjörvari Hafliðasyni sem stóð í marki andstæðinganna. Hjörvar fór aðeins of snemma niður og Eiður átti ekki í erfiðleikum með að skora.

Sjá einnig: Bjarni Ben tognaði þegar hann reyndi að elta Hreim í Landi og sonum – Sjáðu myndbandið

Myndband af markinu má sjá hér að neðan en Hjörvar, sem hefur fengið á sig mikla og andstyggilega gagnrýni eftir markið, svarar fyrir sig og sýnir myndband af glæsilegri markvörslu sem hann átti í leiknum.

Auglýsing

læk

Instagram