Einn yfirheyrður vegna líkamsárásar í Eyjum: Kona fannst nakin með mikla áverka

Einn hefur verið yfirheyrður vegna rannsóknar lögreglunnar í Vestmannaeyjum á líkamsárás í bænum um helgina. Enginn er í haldi lögreglu vegna málsins.

Stundin greindi frá því að kona á fimmtugsaldri hefði verið flutt í skyndi með sjúkraflugi frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur á laugardagsmorgun.

Samkvæmt heimildum Stundarinnar fannst konan meðvitundarlaus í húsagarði rétt hjá öldurhúsi í bænum. Konan er sögð hafa fundist nakin og með mikla áverka, meðal annars á höfði. Telja heimildarmenn Stundarinnar að konan hafi höfuðkúpubrotnað.

Nútíminn hafði samband við lögregluna í Vestmannaeyjum sem vildi ekki staðfesta frétt Stundarinnar. Yfirlögregluþjónn sagði aftur á móti að til rannsóknar væri líkamsárás sem var gerð um helgina. Einn hefur verið yfirheyrður vegna málsins en enginn er í gæsluvarðhaldi vegna þess.

Yfirlögregluþjónn sagðist ekki geta tjáð sig um hvort grunur léki á að konunni hefði verið nauðgað. Þá sagðist hann ekki geta gefið nánari upplýsingar um málið vegna rannsóknarhagsmuna. Von er á tilkynningu frá lögreglunni í Vestmanneyjum á morgun.

mbl.is greinir frá því að farið hafi verið fram á gæsluvarðhald yfir manni vegna brots á konu á fimmtugsaldri um helgina. Héraðsdómur Suðurlands er sagður hafa hafnað kröfunni og málinu verið áfrýjað til Hæstaréttar.

Auglýsing

læk

Instagram