Eldur í hóteli Gunnars Nelson í London: „Ekki besta kvöldið til þess að standa úti í kuldanum!“

Eldur kom upp í hótelinu sem Gunnar Nelson og fylgdarlið hans dvelur á í London í kvöld. Gunnar mætir Bandaríkjamanninum Alan Jouban á bardagakvöldi UFC í London annað kvöld.

Jón Viðar Arnþórsson, forseti Mjölnis og æfingarfélagi Gunnars, birtir myndir af sjálfum sér ásamt Gunnar og föruneyti þeirra fyrir utan hótelið og glittir í slökkviliðsbíl í bakgrunni.

„Kviknað í hótelinu okkar! Ekki besta kvöldið til þess að standa úti í kuldanum!“ segir Jón Viðar á Facebook.

Mikil spenna er fyrir bardaga Gunnars. Hann átti að berjast síðast við Kóreubúann Dong Hyung Kim í Belfast í nóvember en varð að draga sig úr bardaganum vegna ökklameiðsla.

Gunnar barðist síðast í maí í fyrra á móti Rússanum Albert Tumenov sem hann vann örugglega með hengingartaki í annarri lotu.

Auglýsing

læk

Instagram