Emilia Clarke og Kit Harrington skemmtu sér á Laugaveginum: „Fjölskyldumyndin“

Leikkonan Emilia Clarke sem fer með hlutverk Daenerys Targaryen í Game of Thrones birti í dag skemmtilega mynd af sér ásamt Kit Harrington, sem leikur Jon Snow í þáttunum, að sprella á Laugaveginum í Reykjavík.

Sjá einnig: Game of Thrones stjarna í góðum gír á Íslandi

Áttunda og síðasta sería Game of Thrones er hafin og eiga aðdáendur þáttanna von á rosalegu uppgjöri á næstu vikum. Samband Daenerys og Jon í þáttunum hefur verið í sviðsljósinu í upphafi seríunnar en Emilia grínaðist með það í texta við myndina.

Myndin er líklega tekin þegar þau voru við tökur á þáttunum hér á landi.

Auglýsing

læk

Instagram