Facebook-síða Gunnars Nelson hökkuð, aðdáendur skilja ekkert hvað er í gangi

Facebook-síða Gunnars Nelson hefur verið hökkuð. Það útskýrir flóð ansi furðulegra færsla á síðunni sem hafa ruglað aðdáendur bardagakappans ansi mikið í ríminu.

Gunnar á rúmlega 106 þúsund aðdáendur á Facebook og hafa þeir eflaust klórað sér í höfðinu yfir þessum furðulegu færslum. Gunnar kom skilaboðum áleiðis til fylgjenda sinna á Twitter. Hann bíður eftir því að Facebook bregðist við ástandinu.

Svo virðst sem síðan hafi verið hökkuð fyrir tólf tímum síðan og síðan þá hafa ýmsar furðulegar færslur birst á síðunnu. Til dæmis þessi hérna sem sýnir þróunina á útliti Kim Kardashian í gegnum tíðina.

Flestir aðdáendur kappans sem skilja eftir ummæli á síðunni virðast vera með á hreinu að síðan hafi verið hökkuð. Einn er þó með svo frjótt ímyndunarafl að hann telur að um skrýtna markaðssetningu sé að ræða.

Aðrir hafa hvatt Gunnar til að mæta hakkaranum í hringnum.

Auglýsing

læk

Instagram