Fagnaði marki með því að fá sér bjórsopa: „Besta fagn sem ég hef séð á fótboltavelli“

Kennedy Bakircioglu, leikmaður Hammarby í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta, hefur vakið athygli fyrir fagn sitt eftir glæsilegt mark sem hann skoraði í gærkvöldi. Sjáðu myndbandið hér að neðan.

Kennedy er gífurlega vinsæll á meðal stuðningsmanna Hammarby og ekki minnkuðu þær vinsældir þegar hann fagnaði marki með því að fá sér bjórsopa með þeim í gær.

Kennedy hljóp í átt að stuðningsmönnunum og í fagnaðarlátunum kastaði einn þeirra bjórglasi inn á völlinn. Kennedy greip glasið og kláraði bjórinn úr því.

Hallbera Gísladóttir, landsliðskona í fótbolta, var ánægð með fagnið en hún segir það vera það besta sem hún hefur séð á fótboltavelli.

Auglýsing

læk

Instagram