Fáránlega fyndinn slæmur varalestur í NFL, hitað upp fyrir Ofurskálina

Bandaríska Ofurskálin er í kvöld og unnendur ameríska fótboltans eru löngu búnir að setja sig í stellingar. Búið er að undirbúa kjúklingavængina og kæla Coors Light, snakkið er á leiðinni í skálarnar og eðlan fer í ofnin innan skamms.

Grínistarnar hjá Bad Lip Reading hafa skellt saman myndbandi til að hita upp fyrir kvöldið. Þetta er ekki flókið. Þetta er slæmur varalestur. Eitt það fyndnasta sem er í boði á internetinu.

Auglýsing

læk

Instagram