Flækingsköttur stal senunni á tískusýningu í Tyrklandi – Sjáðu myndbandið

Á meðan alþjóðlega tískusýningin Esmod fór fram í Istanbúl í Tyrklandi birtist köttur á tískupallinum. Kötturinn mætti á sviðið og virtist vilja leika við fyrirsæturnar sem gengu fram hjá honum. Myndband af atvikinu hefur slegið í gegn á netinu en hundruð þúsunda hafa skemmt sér yfir kettinum.

Tískuhönnuðurinn Goksen Hakki Ali segir að ekki sé ljóst hvaðan kötturinn hafi komið en það hafi verið ljóst hvað hann vildi.

„Hann vildi fá alla athygli og aðdáun áhorfenda og miðað við frammistöðu hans á sviðinu þá vildi hann ekki deila þeirri athygli með neinum.“

Sjáðu myndbandið

https://twitter.com/flicteria/status/1056084819694833664?s=21

Auglýsing

læk

Instagram