Framleiðslu á gamanþáttunum New Girl hætt?

Lokaþátturinn í sjöttu seríu af New Girl var mjög líklega svanasöngur gamanþáttanna vinsælu. Þetta segir Jake Johnson, sem leikur Nick Miller í þáttunum, í samtali við vefmiðilinn The Daily Beast.

Þátturinn var sýndur vestanhafs í gær og hann segir að sjónvarpsstöðin Fox hafi ekki enn viljað gefa upp hvort sjöunda sería verði framleidd. „En lokaþátturinn í sjöttu seríu var þannig að ef hann yrði sá síðasti, þá yrðu áhorfendur sáttir.“

Við ætlum ekki að gefa upp hvað hann á við, þar sem margir eiga eftir að sjá þáttinn. Þættirnir hafa notið talsverðra vinsælda á Íslandi og víða um heim en nú er óljóst hvort við fylgjumst með nýjum ævintýrum Jess og félaga í framtíðinni.

Auglýsing

læk

Instagram