Frosti Sigurjónsson gefur út bókina Hitamál: „Kolefnisskattar hækka verðlag en bjarga ekki loftslaginu“

Fyrrverandi þingmaðurinn Frosti Sigurjónsson hefur gefið út nýja bók, Hitamál, þar sem hann skoðar með gagnrýnum hætti loftslagsstefnu stjórnvalda, kolefnisskatta og þau markmið sem Ísland hefur sett sér í baráttunni gegn hlýnun jarðar.

Í tilkynningu sem Frosti birti á samfélagsmiðlum segir hann bókina taka „stefnuna um kolefnishlutleysi til nánari skoðunar“ og fara ítarlega yfir loftslagsvísindi, efasemdir, regluverk, losunarheimildir og kostnað almennings og fyrirtækja. Bókin sé  byggð á hátt í hundrað rannsóknum og fjölda annarra heimilda.

„Hækkar allt vöruverð – en dregur ekki úr losun“

Auglýsing

Í Spjallinu með Frosta Logasyni fór Frosti yfir helstu niðurstöður sínar – og gagnrýnin er hvöss.

„Kolefnisskattar á eldsneyti, flug og skipaflutninga hækka allt vöruverð til landsins, hækka flugmiðaverð og hækka verðið við bensíndæluna,“ segir hann. „En þetta dregur í raun ekki úr losun Íslendinga. Fólk hættir ekki að keyra, hættir ekki að kaupa bensín, það þarf að komast í vinnu og sækja krakkana. Þetta bjargar ekki loftslaginu – en hækkar neysluverðsvísitöluna.“

Frosti bendir á að hvert 1% í hækkun á vísitölu þýði tugi milljarða króna í auknar skuldir íslenskra heimila.

„Þetta bitnar sérstaklega á ungu fólki sem hefur tekið verðtryggð lán. Þetta er bæði heimskulegt, gagnslaust og kostnaðarsamt.“

„Losun Íslands skiptir engu máli – og það er ekki hægt að sanna að CO₂ valdi hlýnuninni“

Í viðtalinu fullyrðir Frosti að Ísland sé á villigötum í loftslagsmálum og að áhrif landsins á hnattræna losun séu svo smá að þau skipti engu máli.

„Losun Íslands er 0,01% af losun heimsins. Ef við myndum hætta allri losun á morgun hefði það engin mælanleg áhrif á loftslagið.“

Hann efast einnig um vísindalegar forsendur ríkjandi loftslagssjónarmiða:

„Það er ekki hægt að sanna vísindalega að koltvísýringur sé að valda hlýnuninni. CO₂ er lífsnauðsynlegur fyrir plöntur og meiri koltvísýringur hefur grænkað jörðina. Þó það sé tilgáta að hann valdi hlýnuninni, þá er engin óyggjandi sönnun til.“

Frosti segir rannsóknir sem styðji önnur sjónarmið en ríkjandi pólitíska línu hafa verið kerfisbundið sniðgengnar.

Gagnrýnir íslensk stjórnvöld: „Pólitískur metnaður á alþjóðavettvangi“

Frosti segist telja að loftslagsstefna stjórnvalda sé knúin áfram af pólitískum metnaði og tilfinningum – ekki gögnum.

„Við erum löngu orðin gott fordæmi í orkuskiptum og húsnæðishitun. En stjórnmálamenn vilja ganga enn lengra til að sýna liðsheild á alþjóðavettvangi. Það er pólitískur metnaður sem kostar þjóðina tugi milljarða.“

Hann segir að bókhald yfir losun Íslands sé rangt og að íslenskur gróður, sérstaklega beitarland, bindi meiri koltvísýring en allur iðnaður losar.

Segir almenning ekki styðja aðgerðirnar

Að mati Frosta eru loftslagsaðgerðir stjórnvalda ekki studdar af meirihluta þjóðarinnar.

„Fólkið vill þetta ekki – nema lítill, mjög skelfingu lostinn hópur. Svo er verið að hræða fólk með fullyrðingum um að Golfstraumurinn sé að stöðvast, þó nýjustu gögn sýni annað.“

Bókin komin í sölu

Hitamál er fáanleg sem rafbók, og kemur einnig út í kiljuformi í dag. Hér fyrir neðan má sjá spjall nafnanna Frosta og Frosta:

Auglýsing

læk

Auglýsing

Fréttir

Auglýsing