Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins gengu út af fundi skipulagsráðs: „Þau mæta með ljósmyndarann sjálf”

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í skipulags- og samgönguráði Reykjavíkur gengu út af fundi ráðsins í morgun. Í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum er sagt að fulltrúar flokksins í ráðinu telja að fundurinn hafi verið ólögmætur og ekki hafi verið rétt staðið að boðun hans.

„Sú ákvörðun var tekin af fulltrúum Sjálfstæðisflokks að víkja af fundi ráðsins í morgun vegna þessa. Athygli formanns ráðsins var vakin á málinu í gær og farið fram á að fundinum yrði frestað og boðað til hans að nýju,” segir í tilkynningu.

Kristín Soffía Jónsdóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, gagnrýndi útgönguna á Facebook síðu sinni í dag. Hún segir að þetta hafi hugsanlega verið vanhugsaðasta og vandræðalegasta upphlaup sem hún hafi orðið vitni að á hennar átta ára ferli í pólitík.

„Þau mæta með ljósmyndarann sjálf sem bíður hér. Fundurinn er fullkomlega löglegur en til þess að bregðast við þeim töfum sem urðu við útsendingu gagna er ákveðið að fullnaðarafgreiða ekkert á fundinum en halda inni kynningum enda mættur hér fjöldi ráðgjafa,” segir Kristín.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins segjaað þau hafi engan veginn fengið nægan tíma til þess að kynna sér efni og gögn fundarins með fullnægjandi hætti og ekki hafi verið farið eftir reglum og samþykktum fundarboða.

Sjá einnig: Tekist á um trúnaðarbrest á fyrsta borgarstjórnarfundi: „Á þetta að vera svona næstu fjögur árin?”

„Flest þessara mála varða heilmikla hagsmuni fyrir borgarbúa og skiptir miklu að rétt sé haldið á allri ákvarðanatöku. Öðrum kosti geta þeir aðilar sem eiga mál fyrir nefndinni, látið reyna á lögmæti ákvarðanatöku fundarins, fyrir dómstólum eða eftir öðrum leiðum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks leggja ríka áherslu á vönduð og fagleg vinnubrögð í málaflokknum.”

Einnig kvörtuðu þau yfir því að ekkert af þeim málum sem þau höfðu óskað eftir að yrðu sett á dagskrá fundarins hafi verið sett á dagskrá og engar skýringar hafi borist á því fyrr en í gærkvöldi.

Kristín telur það undarlegt að brugðist sé við með þessum hætti. Gagnrýnin sé á það að þau vilji kynna sér málin en fara svo út og sitja ekki kynningar. Hún segir þá að fulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafi brotið trúnað, skrópað í vinnu og misst af öllum kynningum.

„Þeim er gert fullkomlega ljóst að trúnaður ríkir um fundinn þar til honum er slitið en þau kjósa að brjóta þann trúnað – svo spennt að komast í fréttirnar. Til hamingju Reykvíkingar, þau brutu trúnað, skrópuðu í vinnunni og misstu af öllum kynningum til þess eins að fá þessa fínu mynd af sér,” segir Kristín.

Yfirlýsinguna frá fulltrúum Sjálfstæðisflokksins má sjá í heild sinni hér

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í skipulags- og samgönguráði telja fund ráðsins sem nú stendur yfir ólögmætan, enda ekki rétt staðið að boðun fundarins. Sú ákvörðun var tekin af fulltrúum Sjálfstæðisflokks að víkja af fundi ráðsins í morgun vegna þessa. Athygli formanns ráðsins var vakin á málinu í gær og farið fram á að fundinum yrði frestað og boðað til hans að nýju.  

Í fyrsta lagi gera fulltrúar Sjálfstæðisflokks athugasemdir við boðun fundarins. Skipulags- og samgönguráð starfar enn samkvæmt Samþykktum um umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkurborgar frá 21. júní 2016. Í 2. mgr. 7. gr. samþykktanna kemur fram að fundi skuli boða með minnst sólarhrings fyrirvara og að dagskrá skuli fylgja fundarboði.

Annars vegar láðist formanni ráðsins að senda borgarfulltrúanum og fulltrúa Sjálfstæðisflokks í ráðinu, Hildi Björnsdóttur, fundarboð innan lögbundins frests en það sama á við um áheyrnarfulltrúa Miðflokksins. Hins vegnar fylgdi dagskrá fundarins ekki fundarboði líkt og 2. mgr. 7. gr. samþykktanna gerir ráð fyrir. Dagskráin barst ekki fulltrúum ráðsins fyrr en eftir hádegi í gær, degi fyrir áformaðan fund.

Það getur með engu móti talist nægjanlegur tími fyrir ráðsmenn að kynna sér efni og gögn fundarins með fullnægjandi hætti, enda gögnin fleiri hundruð blaðsíður. Á dagskrá fundarins eru 75 mál og umtalsverður fjöldi gagna sem ráðsmenn verða að kynna sér. Flest þessara mála varða heilmikla hagsmuni fyrir borgarbúa og skiptir miklu að rétt sé haldið á allri ákvarðanatöku. Öðrum kosti geta þeir aðilar sem eiga mál fyrir nefndinni, látið reyna á lögmæti ákvarðanatöku fundarins, fyrir dómstólum eða eftir öðrum leiðum. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks leggja ríka áherslu á vönduð og fagleg vinnubrögð í málaflokknum.

Í öðru lagi höfðu fulltrúar Sjálfstæðisflokks í ráðinu óskað eftir því við formann ráðsins, að tiltekin mál yrðu sett á dagskrá fundarins. Erindi þess efnis var sent formanni tveimur dögum fyrir áformaðan fund. Um beiðnina vísast aftur til 2. mgr. 7. gr. samþykktanna en þar kemur einnig fram að á dagskrá skuli tekin þau mál sem fulltrúar ráðsins hafi óskað eftir, enda séu þau á verksviði ráðsins. Ekkert þessara mála var sett á dagskrá fundarins og engar skýringar bárust fyrr en í gærkvöldi hvað þá ákvörðun varðaði sem fulltrúar Sjálfstæðisflokks telja með öllu ófullnægjandi. 

Hér má svo sjá Facebook færslu Kristínar:

Auglýsing

læk

Instagram