Gæi í skýjunum og á von á sínu fjórða barni: „Þetta var alveg óvart“

Garðar Agnesarson eða Gæi eins og flestir þekkja hann og konan hans, Anna Björk Erlingsdóttir, eiga von á sínu fjórða barni. Gæi, sem er einn vinsælasti snappari landsins, tilkynnti fylgjendum sínum þetta í gær. Fjölskyldan er öll í skýjunum með fréttirnar en von er á fjölguninni í maí.

Gæi segir í samtali við Nútímann að hamingjuóskum hafi ringt yfir hann og fjölskylduna frá því að hann tilkynnti þetta í gær en segir einnig að þessi viðbót hafi ekki verið plönuð „Þetta var alveg óvart en þetta leggst rosalega vel í okkur,“ segir hann.

Það löðrar allt í hamingjuóskum til mín á Snappinu og það er bara dræ velvild í okkar garð.

Þúsundir fylgjast með Gæa og fjölskyldu hans á Snachat á degi hverjum og hann ætlar að vera duglegur að leyfa fólki að fylgjast með hvernig meðgangan gengur. „Snappið verður að sjálfsögðu á lofti allan tíman nema við fæðinguna sjálfa,“ segir Gæi léttur að lokum.

Auglýsing

læk

Instagram