Geggjaður rapp bardagi milli Íslands og Nígeríu

Fótboltavefsíðan B/R Football fylgdist með leik Íslands og Nígeríu í gamla skólanum hans Victor Moses, sem er skærasta stjarna nígeríska landsliðsins. Moses gekk í Harris Academy South Norwood skólann í London.

Eftir leikinn voru það rappararnir MysDiggi og Gemin 1 sem tókust á og gerðu upp leikinn með rapp bardaga.

Það var hart skotið og meðal annars gert grín að Heimi Hallgrímssyni, búningunum, nígerísku aðdáendunum og Hannesi Þór Halldórssyni.

Það er spurning hver vann þennan bardaga en sjón er sögu ríkari

Auglýsing

læk

Instagram