Gummi Ben um Beyoncé: „Þessi augu“

Beyoncé Knowles, Jay-Z og David Beckham mættu saman á leik Paris Saint-Germain og Barcelona í Meistaradeildinni í kvöld. PSG sigraði leikinn með þremur mörkum gegn tveimur en það mætti segja að þrímenningarnir hafi stolið senunni þar sem athygli fréttamiðla hefur beindist mikið til að þeim.

Leikurinn var reyndar frábær en Fótbolti.net fjallar prýðilega um hann.

Fegurð söngkonunnar Beyoncé fer ekki framhjá neinum og Guðmundur Benediktsson, sem lýsti leiknum á Stöð 2 sport, getur kvittað undir það. Þegar leikurinn var að verða búinn beindist myndavélin að henni og Gummi Ben hreinlega týndist í augum hennar.

Þegar myndavélin hafði verið á henni í nokkrar sekúndur sagði hann allt sem segja þurfti:

„Þessi augu…“

Auglýsing

læk

Instagram