Gunnar Nelson kominn með nýjan andstæðing

Bardagakappinn Gunnar Nelson mætir Dong Hyun Kim á bar­daga­kvöldi UFC í Belfast í Norður-Írlandi 19. nóv­em­ber. Búist er við að bar­dagi þeirra verði aðal­b­ar­dagi kvölds­ins.

Gunnar var í fréttunum í gær þegar hann komst í tíunda sæti yfir þá bestu í veltivigtinni hjá bardagasambandinu UFC. Hann var hins vegar ekki lengi þar en um kvöldið var svo nýr listi birtur og á honum er Gunnar í 13. sæti (ahugið að meistarinn í hverjum þyngdarflokki er ekki talinn með í númeruðu röðinni).

Ástæðan fyrir því að Gunnar stökk skyndilega upp í tíunda sæti listans var sú að búið er að taka bardagakappann Rory McDonald af listanum. McDonald er að semja við bardagasambandið Bellator en hann hefur verið á meðal þeirra bestu í veltivigtinni í UFC undanfarin ár.

Gunnar er engu að síður á meðal þeirra bestu og mætur reyndum bardagamanni í nóvember. Kim hefur unnið 21 bar­daga á ferlinum og aðeins tapað þremur og gert eitt jafn­tefli. Hann keppti síðast í UFC í nóvember í fyrra þegar hann vann Dominic Waters.

Auglýsing

læk

Instagram