Gunnar Nelson er kominn með nýjan andstæðing, berst í London í mars

Gunnar Nelson mun berjast við Alan Jouban í London 18. mars. Bardaginn verður næststærsti bardagi kvöldsins í London. Jouban er 35 ára Bandaríkjamaður sem er ekki á styrkleikalista UFC.

Þetta kemur fram á Vísi.

Þar kemur einnig fram að þetta sé fyrsti bardagi Gunnars í UFC síðan í maí á síðasta ári. Þá hafði hann betur gegn Rússanum Albert Tumenov.

Myndband: Gunnar Nelson meiddist á æfingu hjá UFC: „Miður mín að geta ekki barist“

Síðustu mánuði hefur Gunnar verið að jafna sig eftir að hann sneri á sér ökklann á æfingu hjá UFC.  Hann varð því að hætta við bardaga við Kóreubúann Dong Hyun Kim í Belfast í nóvember á síðasta ári.

Auglýsing

læk

Instagram