Gunnar Nelson fékk putta í augað: „Sá tvöfalt það sem eftir var af bardaganum“

Gunnar Nelson segir að Santiago Ponzinibbio hafi potað í augað á sér í bardaga þeirra í Glasgow fyrr í kvöld. Þetta sagði Gunnar í viðtali á blaðamannafundi eftir bardagann. Sjáðu brot úr viðtalinu hér fyrir neðan.

Bardaginn endaði í fyrstu lotu eftir að Santiago rotaði Gunnar. Í viðtalinu segist Gunnar hafa byrjað vel en eftir að hann náði fyrsta högginu á Santiago fékk hann fingur í augað. „Ég hefði átt að segja eitthvað því ég sá tvöfalt það sem eftir var af bardaganum,“ segir Gunnar.

Hann náði höggi á mig sem ég sá ekki nógu vel. Augað er enn þá aumt en þetta er bara einn af þessum hlutum. Ég hefði átt að segja eitthvað og ég veit ekki af hverju ég gerði það ekki.

Dómarinn hefði getað gert hlé á bardaganum ef Gunnar hefði sagt eitthvað. „Kannski hefði ég séð þetta högg en svona er þetta,“ sagði Gunnar en lagði áherslu á að hann væri ekki að afsaka sig heldur vera hreinskilinn.

Sjáðu viðtalið við Gunnar hér fyrir neðan

Auglýsing

læk

Instagram