Helga hættir hjá Birtíngi eftir tæpan mánuð í starfi

Helga Arnardóttir og stjórn Birtíngs hafa komist að samkomulagi um starfslok hennar. Þetta kemur fram á vef Mannlífs.

Tilkynnt var um ráðningu Helgu í desember í fyrra en hún hóf störf í byrjun árs. Til stóð að hún myndi ritstýra Mannlífi og hafa yfirumsjón með áframhaldandi stafrænni uppbyggingu. Birtíngur opnaði nýlega vefin Mannlíf.is ásamt því að gefa út blað með sama nafni mánaðarlega. Helga hafði ritstýrt einu tölublaði.

Birtíngur gefur einnig út tímaritin Hús og híbýli, Gestgjafann og Vikuna.

Auglýsing

læk

Instagram