Hér eru píurnar sem Björk vann á Brit-verðlaununum

Björk Guðmunds­dótt­ir hlaut Brit-verðlaunin í gærkvöldi sem besti alþjóðlegi kven­kyns listamaður­inn. Þetta eru fimmtu Brit-verðlaun söng­kon­unn­ar.

Verðlaun­in voru af­hent í O2 tón­leika­höll­inni í Lund­ún­um en Björk var ekki viðstödd hátíðina þar sem hún er í miðjum upp­tök­um. Aðrar sem voru til­nefnd­ar í sama flokki voru Lana Del Rey, Ari­ana Grande, Court­ney Barnett og Meg­h­an Train­or.

Þetta eru engar smá tónlistarkonur en Nútíminn tók saman örlitlar upplýsingar um hverja og eina.

 

Lana Del Rey

Lana Del Rey sendi frá sér fjórðu plötuna sína í fyrra, Honeymoon. Henni var mjög vel tekið og Lana er í dag í fjórða sæti yfir vinsælustu konurnar á Spotify. Hún er búin að selja rúmlega sjö milljónir platna og 12 milljónir smáskífa um allan heim.

Ari­ana Grande

tumblr_lywkrtT1St1r4kfic

Ariana er gríðarlega vinsæl og sendi frá sér lagið Focus á dögunum. Lagið fór í 7. sæti Billboard-listans og hún varð þar með fyrsti tónlistarmaðurinn til að ná öllum aðalsmáskífunum af fyrstu þremur plötunum sínum á topp 10 í Bandaríkjunum.

Court­ney Barnett

tumblr_n4k4m3zqas1qhub34o2_r1_400

Courtney sló í gegn með fyrstu plötunni sinni í fyrra. Hún hefur sópað að sér verðlaunum og var tilnefnd til Grammy-verðlauna í ár sem besti nýi listamaðurinn.

Meg­h­an Train­or

meghan-trainor-reggae-album-say-what

Platan Title með Meghan Trainor fór beint á toppinn á bandaríska Billboard-listanum þegar hún kom út í fyrra. Fjögur lög af plötunni komust á topp 20 en við þekkjum eflaust best ofursmellinn All About That Bass.

Auglýsing

læk

Instagram