Hera Hilmarsdóttir fer á kostum í nýrri stiklu fyrir Mortal Engines: „Ekki þessi týpíska hetja“

Leikstjórinn Peter Jackson og félagar birtu í dag nýja stiklu úr stórmyndinni Mortal Engines. Eins og fram hefur komið á Nútímanum fer Hera Hilmarsdóttir með aðalhlutverkið í myndinni sem verður frumsýnd í desember. Horfðu á stikluna hér fyrir neðan.

Hera fer með hlutverk Hester Shaw í kvikmyndinni sem er byggð á samnefndri bókaröð eftir Philip Reeve og gerist í framtíðinni. Borgir jarðarinnar eru orðnar að einhvers konar vélum sem ferðast um og berjast um auðlindirnar sem eru eftir á jörðinni sem hefur verið lögð í eyði.

Í nýju stiklunni eru viðtöl við Heru Hilmars og Peter Jackson í bland við atriði úr myndinni. Hera lýsir persónu sinni sem dularfullum harðjaxli sem vill hefna sín á illmenninu sem varð föður hennar að bana.

Sjáðu stikluna

Auglýsing

læk

Instagram